11/15/2015
Glæsileg íbúð til leigu í Deltona, Florída. Íbúðin er staðsett við Lake Monroe í fallegu og mjög barnvænu umhverfi. Öryggisgæsla er allan sólahringinn á svæðinu. Sameiginleg stór sundlaug er á staðnum og tekur um 2 mínútur að ganga að henni. Þar eru sólbekkir, stólar og borð. Einnig er tennisvöllur á svæðinu. Margar fallegar gönguleiðir og stórir leikvellir eru fyrir börnin í göngufæri við íbúðina. Íbúðin er 90 fermetrar. Í hverri íbúð eru tvö svefniherbergi með hjónarúmum, tvö baðherbergi, bæði með sturtuaðstöðu, stofu og eldhúsi útbúið öllum helstu tækjum. Svefnaðstaða er fyrir fjóra fullorðna . Í íbúðinni er kapalsjónvarp og þráðlaust net. Einnig er barnaferðarúm á boðstólum.. Matvörubúð og skyndibitastaðir eru í göngufæri. Þar sem íbúðin er staðsett á annari hæð þá er því miður ekki hjólastóla aðgengi.
Deltona er mjög miðsvæðis og er um 30-40 mínútna akstur til Orlando þar sem allir helstu skemmtigarðarnir eru staðsettir. Allar helstu verslanir eins og Mall, Target og Wal Mart eru í 5-15 mínútna akstursfjarlægð. Einnig er aðeins 35 til40 mínútna akstur til Daytona Beach eða New Smyrna Beach þar sem strandar aðstaða er mjög góð.
Frábær aðstaða fyrir eldra fólk sem og fjölskyldufólk.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Kristrúnu í síma 898-4241 eða [email protected]
Elegant apartment for rent in Deltona, Florida. The apartment is located in beautiful Lake Monroe. The enviroment is very child-friendly . Security guard is in the area around the clock. Shared large swimming pool is on site and it takes about 2 minutes to walk to it. There are sun loungers, chairs and tables. There is a tennis court in the area. There are many beautiful hiking trails and large playgrounds for children within walking distance of the apartment. The apartment is 90 square meters. Every apartment has two sleeping rooms with double beds, two bathrooms, both with shower, living room and kitchen equipped with all major appliances. Sleeping area for four adults and . The apartment has cable television and wireless internet.. Supermarket and fast food places is within walking distance. Since the apartment is located on the second floor there is unfortunately no wheelchair acces. Deltona is very centrally located and it takes about 30-40 minutes to drive to Orlando, where all the major theme parks are located. All major shops like a Mall, Target and Wal Mart are about 5-15 minute drive away. It is also only a 35-40 minute drive to Daytona Beach or New Smyrna Beach where the beach facilities are very good..
This appartment and area of Lake Monroe has everything to offer and excellent facilities for both senior citizens and families with children.