Hús til leigu í Orlando Florida

Hús til leigu í Orlando Florida Til leigu glæsilegt hús með sundlaug sem stendur við golfvöllinn í Ventura Orlando 3 svefnherb 2 baðh Disney & Sea World.

HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, FLORIDA


Við erum með glæsilegt einbýlishús til leigu á Ventura svæðinu í Orlando. Ventura er vaktað hverfi og inni á svæðinu er glæsilegur og vel hirtur 18 holu golfvöllu. Inni á svæðinu er aðgengi að sundlaug ásamt tennisvöllum, körfuboltavelli og leiksvæði fyrir börn. Í klúbbhúsinu er líkamsræktaraðstaða og veitingastaður með góðan mat á sanngjörnu verði. Ven

tura er einstaklega vel staðsett og er aðeins í 10-15 mínútna fjarlægð frá Orlando International Airport, MCO. Svæðið er mjög miðsvæðis og aðeins tekur um 30 mínútur að aka til helstu skemmtigarða, s.s. Nánari upplýsingar um Ventura svæðið: https://venturacc.org/


Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með svefnplássi fyrir 6 manns, tvö baðherbergi ásamt eldhúsi, stofu og bílskúr og er allt nýtekið í gegn. Fallegt hús með sundlaug á mjög skemmtilegum stað, beint við teiginn á 12 holu.

Þegar komið er inn um aðalinngang blasir við opið rými með sjónvarpsaðstöðu þar sem 6 geta setið saman. Innaf því rými tekur við borðstofa með sæti fyrir 6 manns.
Á hægri hönd þegar gengið er inn eru tvö svefnherbergi sem deila saman baðherbergi. Master hjónaherbergi er síðan við hliðina á alrýminu og inn af því er baðherbergi.

Þráðlaust internet er í húsinu og eru sjónvörp í öllum herbergjum þannig að það fer vel um alla sem í húsinu dvelja.

Í húsinu er nýtt og vandað gasgrill og einnig eru rúmföt, handklæði, hárblásari og annað sem þarf er í húsinu, allt til að gera dvölina sem ánægjulegasta. Endilega hafið samband á netfangið [email protected] eða í PM hér á síðunni,

Address

Ventura Country Club
Orlando, FL
32822

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hús til leigu í Orlando Florida posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hús til leigu í Orlando Florida:

Shortcuts

Share